Ég vona bara að stjórnvöldum fari að bera gæfa til að byggðatengja fiskveiðiheimildirnar. Sjávarútvegurinn hefur verið atvinnuvegur landsbyggðarinnar. Það þarf að tryggja með lögum að nægar fiskveðiheimildir séu og verði til staðar í öllum sjávarbygðum. Látum auðmennina beita kröftum sínum í annað en að leggja hinar dreifðu byggðir í rúst.
Staða starfsfólks Kambs mjög alvarleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"byggðatengja fiskveiðiheimildirnar" er það þá bæjarstjórnin á hverjum stað sem ákveður hvaða fyrirtæki fær að lifa og hver ekki?
Grímur Kjartansson, 19.5.2007 kl. 22:02
Hvernig ósköpunum getur Framsókn borið ábyrgð á þessu?
-Hver hefur stjórnað Sjávarútvegsráðuneytinu síðustu þrjú kjörtímabil?
-Hver kom á framsalinu?
Hver situr núna sem sjávarútvegsráðherra og skilur bara ekkert í því hvernig þetta gat gerst? Þarftu ekki frekar að ræða þetta við væntanlega ráðherra í Baugsstjórninni?
Eygló Þóra Harðardóttir, 20.5.2007 kl. 07:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.